Í gamla daga..

Við vorum á leið heim úr fjölskylduboði og dóttir mín sneri sér að mér: "mamma, hvað gerði fullorðna fólkið áður en internetið kom?" Ég skildi ekki spurninguna og einbeitti mér að því að komast áfram í myrkrinu. Ég hváði, gerði ráð fyrir að þetta væri ein af þessum: ... mamma, voru til bílar þegar þú varst lítil í gamla daga... athugasemd. Ég einbeitti mér að henni aftur. Hún byrjaði aftur:  "Fullorðna fólki er alltaf í símanum sínum þegar við hittum þau. Þau taka alltf símann upp og horfa á hann, þó að það sé langt síðan við hittum þau.." 

Ég næstum snarstansaði á veginum og leit á hana. Þetta var alveg rétt. Flestir gestirnir höfðu tekið upp síma sinn, allavega einu sinni. Gónt ofan í símatómið og flétt í gegnum það sem aðrir voru að gera þá stundina en ekki á fjölskylduna sem sat í kringum það. Ég hafði sjálf örugglega tekið upp símann, eins og hinir.

Hjarta mitt sökk niður í gólf, hvernig er að vera barn í dag? Hver er athyglin sem þau fá. Ég man eftir því að það þurfti að þegja þegar fréttir og veður gengu yfir í gamla daga en skyldu þau þurfa að þegja oftar núna? Erum við duglegri að kíkja á líf fólks í símatóminu heldur en það sem í kringum okkur er? Er mikilvægara að ná rétta sélfí-inu heldur en að brosa framan í hvort annað?

Ég sneri mér að stelpunni minni og leit lengi á hana. "Áður en internetið kom þá töluðum við bara saman og stundum horfðum við saman á eitthvað, öll í einu." Hún horfði á mig og endaði með að segja, hugsandi meðan hún horfði út í myrkrið, "það hefur örugglega verið gaman.".

Ég er að hugsa um að fjarlægja síma í upphafi fjölskylduboða núna og geyma minn heima þegar ég er boðin eitthvað næst, þ.e. ef einhver skyldi bjóða mér! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Nútíma símar skapa öðruvísi vanda en gömlu símarnir.  Í raun þá sköpuðu gömlusímarnir engan vanda, en það þurfi þó að fara til þeirra til að nota þá, en fólk kunni þá enn, að skrifa bréf og hringdi ekki í tíma og ótíma.

Nútíma símar eru plága sem margt fólk kann ekkert með að fara og tekur hann fram fyrir gestgjafann og þar með eru stórir hlutar af því sem þóttu sjálfsagðir mannasiðir, nú  uppétnir af hátæknisímum.  Ég skil gemsan gjarnan eftir það sem ég fer úr vinnufötum og það virðist vera að menn átti sig á því sumir, að það er ekki jafn sjálfsagt að hringja í mig ef gemsinn svar ekki.   

Hrólfur Þ Hraundal, 5.11.2015 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband