Þrjár spurningar í minningagrein

Vinkona mín sem er prestur segir að það sé sér hollt að jarða reglulega. Ekkert minnir mann eins á mikilvægi lífsins eins og að kveðja einhvern úr þessari jarðvist. Ég fór á jarðaför í vikunni og varð hugsað til þessara orða hennar.

Ég hef kennt í MBA-námi frá því að byrjað var að kenna slíkt nám hér á landi, sem sagt, lengur en elstu menn muna! Ég hef í mörg ár látið nemendur mína gera "ímyndaða" minningargrein um sig sjálfa. Þá sjá þeir fyrir sér hvað vinir, fjölskylda og aðrir muni skrifa um þá eftir fráfall þeirra. Flestum finnst þetta vera erfið æfing en eftir að heyra að verkefnið sé metið til einkunna þá skila þeir því af sér.

Ég legg þetta verkefni fyrir því það leiðir í ljós gildi okkar, fyrir hvað við viljum standa og hvernig við ætlum að vinna að því. Það sem við skiljum eftir í þessum heimi er ekki það sem mölur ryð fá grandað heldur það sem skilið er eftir í hjörtum þeirra sem eftir lifa.

Helstu heimspekingar heimsins hafa lagt á það áherslu að það sé mikilvægar að spyrja réttu spurninganna frekar en að svara spurningum. Hér eru þrjár slíkar sem hægt er að svara í ímyndaðri minningargrein: Í fyrsta lagi; sýndi ég kærleik í verki? Hér er mikilvægt að svara hvort maður sjálfur hafi elskað heitt og sýnt kærleik EKKI hvort aðrir hafi elskað mann eða sýnt manni kærleik. Ef maður er fastur í þeirri villu að setja mælistikuna fyrst á aðra en ekki sjálfan sig þá er kærleiksljósið alltaf sett í skugga. Í öðru lagi; Lifði ég til fulls? Hér verður hver og einn að skilgreina fyrir sig hvað það þýðir. Í þriðja lagi; Skipti ég máli? Hafði líf mitt áhrif til góðs? Hvernig metur maður það? Aftur svari hver og einn fyrir sig.

Ég var svo heppin að jarðaförin sem ég fór í var ánægjuleg í alla staði. Þrátt fyrir söknuðinn og sorgina þá var fólk þakklátt fyrir það sem þessi einstaklingur hafði skilið eftir í hjörtum þeirra. Svörin við spurningunum þremur hér að ofan voru augljós, hann hafði sýnt öðrum kærleik, lifað til fulls og skipt máli í lífi annarra. Er hægt að biðja um meira?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband